{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/0dffa10e\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":2478,"description":"Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og hugmynd nokkurra þingmanna um sjö ríkja bandalag við Norður-Atlantshaf sem inniheldur bæði Kanada og Bandaríkin. \nMeðal þess sem rætt er í þættinum:\nHaustþingið fer rólegar af stað en boðað var. Harkan sem búist var við af stjórnarandstöðunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu lætur bíða eftir sér.\nStemningin við stefnuræðuna, harðari tónn Þorgerðar Katrínar, ummælin um AfD og strengurinn milli valkyrjanna þriggja.\nÞingmálaskráin inniheldur 153 mál, þar af 127 lagafrumvörp. Stiklað á stóru í þættinum og farið yfir valin þingmál.\nÖryggisvottun á dagskrá þingsins. Ísland er herlaus þjóð sem kann ekki að geyma leyndarmál.\nTóbak, rafrettur og nikótínvörur sameinuð í einn lagabálk og sterk hagsmunaöfl munu beita sér gegn því.\nRáðherra virðist stefna að banni við hvalveiðum en segir það ekki beinum orðum.\nAuknar heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi, lengra gæsluvarðhald, húsleit án dómsúrskurðar og hvers vegna víðtækar heimildir verða að daglegu verklagi.\nEinstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta og erfðaupplýsingar. Hugtök á borð við gagnagrunnur og upplýst samþykki aftur á dagskrá\nNokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu um að Ísland hafi frumkvæði að því að mynda sjö ríkja fríverslunarbandalag við Norður-Atlantshaf og fái Bandaríkin, Bretland, Kanada, Grænland, Færeyjar og Noreg að borðinu.\nRæða Ursulu von der Leyen: Evrópa á krossgötum og enginn slaki gagnvart uppgangi öfgaafla.\n\nÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}