{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Rúnar Sigurpálsson","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/11ff59bf\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3541,"description":"Gestir skákþáttarins að þessu sinni eru skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson, hagfræðingur MBA og Rúnar Sigurpálsson, FIDE meistari og framkvæmdastjóri orkufyrirtækisins Fallorku á Akureyri. Magnús Pálmi var í stúdíóinu með Kristjáni Erni en Rúnar kom svo inn í síðari hluta þáttarins með símasambandi frá Akureyri. Í fyrri hlutanum sagði Magnús frá áætlun sinni um að setja á stofn skáksetur á Hóli í Bolungarvík, sem hann nýlega festi kaup á, þar sem skákmönnum gæfist kostur á að dveljast, nema og stúdera skáklistina í góðu næði við góðar aðstæður. Einnig ræddi hann áhuga sinn á að koma upp fyrsta flokks skákaðstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Þar yrði hægt að halda vönduð skákmót þar sem öll bestu tæki og áhöld yrðu til staðar, bæði til taflmennsku og útsendinga. Rúnar Sigurpálsson sagði frá skáklífinu á Akureyri, rifjaði aðspurður af Magnúsi upp fjölda þeirra skákmeistaratitla sem hann hefur unnið til í gegnum árin og sögðu þeir félagarnir sögur frá menntaskólaárum sínum á Akureyri og þegar þeir tefldu í landsliðsflokki í Vestmannaeyjum árið 1994. Margt annað bar á góma sem hlusta má á í þættinum. ","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}