{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Síðdegisútvarpið","title":"10.08.23 - Skoðanakannanir - Þórólfur Þórlindsson prófessor emeritus í félagsfræði","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/1707acdf\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3595,"description":"Í þættinum um stjórnsýslu- og neytendamál tók Kristján Örn Elíasson á móti Þórólfi Þórlindssyni, prófessor emiritus í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þórólfur er með doktorspróf í félagsfræði frá University og Iowa í Bandaríkjunum. Hann hefur verið kennari við Háskóla Íslands í meira en fjörutíu ár. Hann var forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála frá árinu 1990 til 1997 og forstöðumaður Lýðheilsustöðvar frá 2007 til 2009. Þá var hann forseti félagsvísindadeildar Háskóla Íslands með hléum í samtals níu ár. Þórólfur hefur birt fjölda fræðigreina í alþjóðlegum fræðiritum. Þeir ræddu um bókina „Spurt og Svarað“ sem fjallar um aðferðafræði spurningakannana en Þórólfur er höfundur bókarinnar ásamt Þorláki Karlssyni, dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík en hann er jafnframt meðstjórnandi fyrirtækisins Maskínu rannsóknir, sem stundar m.a. skoðanakannanir, starfsmanna- og þjónusturannsóknir sem og almennar markaðsrannsóknir. Komið var inn á hvort ástæða væri að setja lög eða reglur um skoðanakannanir en á Spáni og í Frakklandi er t.d. bannað að birta niðurstöður skoðanakannanna rétt fyrir kosningar og ræddu þeir margt annað bæði fróðlegt og athyglisvert.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/O85RALagbE90B8He9lMBWaEav_wWOEPrScIOhqSW8RI/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzI1MTQyLzE2NzYw/MzI4NDYtYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}