{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Skákskóli Íslands: Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/2e4641db\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3267,"description":"Kristján Örn Elíasson tekur á móti Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Björn er með tvær gráður frá Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Hann er FIDE-meistari og FIDE-trainer sem þýðir að á einhverjum tímapunkti á skákferli sínum hefur hann öðlaðst a.m.k. 2300 alþjóðleg skákstig og að hann hafi sótt námskeið og staðist próf hjá FIDE sem leiðbeinandi og þjálfari í skák. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn töluðu um Skákskóla Íslands, Pressukeppnina sem er ný leið skólans til æfinga fyrir ungmenni, fjárfestingu skólans í nýjum stórum 98 tommu skjá og öðrum búnað til fjarkennslu, vinsælan skákróbot sem teflir við nemendur, fartölvur og heyrnartól sem og fjölgun iðkenda skólans, bæði í stað- og fjarkennslu. Tölvulistinn hefur verið aðalstyrktaraðili Skákskóla Íslands að baki þessum fjárfestingum eins og svo oft áður. Tíu nemendur skólans fara á morgun til Fredericia í Danmörku til að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga dagana 13.-15. febrúar. Einnig ræddu þeir Tata Steel skákmótið, Speed Chess Championship netskákmótið á Chess.com, mikinn áhuga á Reykjavíkurskákmótinu, nýju heimildarmyndina \"Queen of Chess\" á Netflix sem fjallar um Judit Polgar sterkustu skákkonu allra tíma og margt fleira.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}