{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Lifir þjóðin ágúst af eða deyr hún úr leiðindum?","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/2ec2726e\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3649,"description":"Ritstjórn Gímaldsins tekur stöðuna á kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnun, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og nei-hreyfinganna, hvort þjóðin sé orðin þreytt á málinu og hvort þögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í umræðunni sé skynsamleg.\nEitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland því stuðningur við nei eykst ekkert.\nEldra fólk er að verða jákvæðara samkvæmt nýrri könnun á meðan tvær grímur renna á miðaldra fólk.\nRúm 93 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna ætla að segja já í ágúst. Ungliðahreyfing og áhrifafólk í flokknum berst fyrir nei-hliðina.\nSjálfstæðisflokkurinn biður flokksfólk að „fylgja eftir“ vinum og vinnufélögum fram að kosningum. Aðferðin minnir á pólitíska eltihrella.\nHreyfingar sem þurfa ekki að gefa upp fjárframlög geta nú tekið við fé umfram það sem flokkar mega þiggja. Stjórnmálaflokkar hvetja fjársterka til að láta fé af hendi rakna.\nOpnir fundir henta ekki öllum hreyfingum. Evrópuhreyfingin ætlar að beita maður á mann aðferðinni en Sjá stendur fyrir opnum fundum.\nKristrún Frostadóttir vill forðast mistök Davids Camerons og heldur sig til hlés.\n\nEyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum og með henni eru Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir.\n\nÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}