{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/31c78fe0\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":1855,"description":"Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd.\nÁrni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni.\nErla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina. \nMeðal þess sem fram kemur:\nFeðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.\nViðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunum\nEinn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum. \nAnnar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra. \nÞað er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.\nMæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.\nFélagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.\nEinn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistök\nSkortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánun\nÁrni segir það...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}