{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Frelsi og fullveldi","title":"Málfundur #2: Þrælshringurinn og vakningarákall til þjóðarinnar","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/329dc147\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":2831,"description":"Þessi upptaka er frá öðrum málfundi Málfundafélagsins Frelsis og fullveldis sem haldinn var á Catalínu í Kópavogi þann 27. apríl 2023. Framsögumenn voru Arnar Þór Jónsson lögmaður og sr. Geir Waage. Miklar og góðar umræður áttu sér stað eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu. Hér er upptaka af ræðum framsögumanna (47 mínútur) en upptaka af öllum fundinum, þ.e. ræður framsögumanna og umræður allra sem tóku til máls verður líklega birt á nýrri YouTube-rás félagsins sem er í vinnslu.\n(Smá hljóðtruflanir eru í upptöku en aðeins á fyrstu mínútu fundarins).\nErindi Arnars Þórs var um EES samninginn, bókun 35 og þörf á vakningarákalli til þjóðarinnar og Geir Waage talaði um Þrælshringinn og frelsi einstaklingsins, ekki aðeins frá skyldum og kvöðum heldur einnig frelsi til að taka á sig skyldur og kvaðir.\nÚr framsögu Arnars Þórs Jónssonar (tímalína 00:02:20):\n\"Fullveldið er eign íslensku þjóðarinnar og það getur enginn afsalað því nema þjóðin sjálf.\"\n\"Ísland og Íslendingar hafa aldrei samþykkt að verða hluti af einhvers konar evrópsku sambandsríki; þetta hefur aldrei verið borið undir íslenska þjóð.\"\n\"Við verðum að skilja hvað við erum að fást við. Við erum að fást við stærstu lagaverksmiðju í sögu mannkynsins. Þetta eru tugir þúsunda blaðsíðna af lögum og reglum sem eru þessi réttur ESB í dag.\"\n\"Alþingi leyfist ekki að saxa fullveldið niður í svo smáum sneiðum að fólk tekur ekki eftir því fyrr en það er farið.\"\n\"Við búum í vaxandi mæli við ósýnilegt embættismannavald. Fátt er hættulegra en vald sem svarar ekki til neinnar ábyrgðar.\"\nÚr framsögu Geirs Waage (tímalína 00:22:20):\n\"Áhald var til í öndverðri Íslandsbyggð sem að fáir kunna að nefna og enn færri vita til hvers var. Það var Þrælshringurinn. Á þeirri öld, fyrstu öld Íslands, gengu innfluttir menn meðal innfluttra manna og höfðu málmhring um hálsinn. Hann var þar til þess að gera eigendum þeirra og húsbændum auðveldara að snúa þá niður og láta þá hlýða sér. \nÞeir sem ekki höfðu svona hring um hálsinn voru...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/bZnAoZzR4TAAJkF3Z7i8dHakME5o-7QKFSXMWCCgoO0/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzQ2Mjg2LzE3MTIw/Mzc5MDctYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}