{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Valdið og miðin: ESB, auðlindir og undanþágur","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/3a3c57f8\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3203,"description":"Í nýrri álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík er fjallað um valdheimildir Evrópusambandsins og hvaðan þær koma, orkustefnu ESB, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, aðildarsamninga og aðildarviðræður. Svo eru rakin fjölmörg dæmi um undanþágur og sérlausnir sem ríki hafa samið um við ESB. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir rýna í álitsgerðina sem snertir á mörgum af heitustu ágreiningsefnum sumarsins. \nÍ þættinum er meðal annars fjallað um:\nHvaða reglur gilda um eignarréttindi innan ESB?\nGetur Evrópusambandið búið til valdheimildir fyrir sjálft sig?\nHverju getur Evrópusambandið ráðið um auðlindir aðildarríkja? \nEr þorskur þjóðarauðkenni?\nOrkulöggjöfin er að mestu komin inn um EES, en heldur Ísland undanþágum sínum?\nGetur ESB ákveðið að leggja sæstreng til Íslands?\nHvernig myndu þorskveiðar breytast ef Ísland gengi í ESB? \nHvað yrði um samninga Íslands um makrílinn, norsk-íslensku síldina og kolmunna? \nDönsku sumarhúsin, sænska snúsið, heimskautabændur og fiskimið Möltu - hvað kenna fordæmin um undanþágur?\nÁlitsgerðina má lesa á vef Stjórnarráðsins en hana unnu þrír prófessorar við Háskólann í Reykjavík: Gunnar Þór Pétursson, Hafsteinn Dan Kristjánsson og Margrét Einarsdóttir. \nÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. ","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}