{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"5 ára planið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/3f4642b7\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3549,"description":"Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni.  Margt hefur drifið á daga íslenskra skákmanna að undanförnu og margt spennandi er á dagskrá næstu vikurnar sem þeir Helgi og Kristján Örn fóru yfir í þættinum.Má þar nefna að í dag hefði Hrafn Jökulsson rithöfundur, blaðamaður og skákfrömuður orðið 58 ára gamall en hann lést á síðasta ári. Vinaskákfélagið heldur glæsilegt hraðskákmót að Aflagranda 40 í Reykjavík síðar í dag til minningar um Hrafn og hafa flestir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar sem eru á landinu boðað þátttöku sína. Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, mun leika fyrsta leikinn fyrir Hjörvar Stein Grétarsson stórmeistara á efsta borði.Helgi sagði frá athyglisverðri og stórskemmtilegri grein sem hann skrifaði í síðasta tölublað Tímaritsins Skák sem hann kallar \"5 ára planið\" með undirfyrirsögninni \"Reynslusaga miðaldra stórmeistara af endurkomu í skákheiminn\". Í lok greinarinnar segir hann að aðalatriðið sé að vinna í að bæta ákvarðanir sínar og finna leiðir til að skapa erfiðleika fyrir andstæðinginn, að taka skynsamlegar ákvarðanir. Á þann hátt sé líklegast að maður hámarki árangur sinn á hverjum tíma. Annað sem þeir félagar ræddu var staðan á Íslandsmóti skákfélaga 2023-2024 sem nú er hálfnað, frábæran árangur Birkis Hallmundarsonar á HM í flokki 10 ára barna og yngri, nýlokinni sterkri mótaröð Bistro-banka í Mosfellsbæ þar sem peningaverðlaun voru ein milljón króna á glæsilegu lokamóti, Uppsala unglingamótið, Hannes Hlífar á HM 50 ára og eldri, Ofurmótið á eyjunni Mön, EM landsliða sem er fram undan og margt fleira áhugavert og skemmtilegt. ","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}