{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/4d98afb0\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":4494,"description":"Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök. Þáttastjórnandi er Eyrún Magnúsdóttir. Meðal þess sem kemur fram:Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og byggðu upp traust þvert á flokkslínurÞegar efnahagshrunið skall á 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar slæm. Meirihluti og minnihluti unnu náið saman að lausn mála og traust á borgarstjórn rauk upp í kjölfariðÞær áttu gott samstarf og sameinuðust um breiðar línur: engar skattahækkanir, enginn niðurskurður á grunnþjónustu, engar uppsagnir starfsmanna Á árunum 2006-2010 myndaðist grunnur fyrir sameiginlega sýn á skipulag borgarinnar, þvert á flokkaKonur í stjórnmálum fá harðari gagnrýni og endast að meðaltali eitt kjörtímabil á meðan karlar endast þrjúNútíminn gerir stöðu kvenna enn erfiðari: samfélagsmiðlar verðlauna hraða og gífuryrði frekar en yfirvegun og málefnaleg rökÞær hafa áhyggjur af bakslagi í jafnréttismálum „Bakslagið er að þurfa að útskýra hluti sem við héldum að við værum komin með. Það er bakslagið.\"Réttur kvenna yfir eigin líkama eigi að vera í stjórnarskrá: „Það er nákvæmlega þetta sem er fyrst sótt að þegar bakslag kemur\"Þær kalla eftir umræðu án upphrópana í Evrópumálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðar telja þær þó að hagsmunum Íslands sé betur borgið í EES en ESBÞað er skortur á vinstri sjónarmiðum á Alþingi, segir Hanna Birna.Pólitíkin fer aldrei úr þeim: Svandís fylgist með óundirbúnum fyrirspurnatímum og Hanna Birna horfir stundum á borgarstjórnarfundi í beinniÞátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/VTJtNBrx8_YwqdE0LIzn1FGztcT0hoJmHHRoDjpiaYg/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS8yOWRh/NGRmMTYxMmRkZWJi/NDk3YzgwZWY0ZjEz/ZTU4YS53ZWJw.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}