{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Skákdeild Fjölnis: Helgi Árnason formaður og Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/52ffe8ad\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":2952,"description":"Að þessu sinni settist Við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla. Helgi segir að hann hafi fyrst og fremst tengst skákinni í gegnum skólastarf og þá mest eftir að hann tók við starfi skólastjóra við Rimaskóla sem hann gengdi í 26 ár en skólinn var stofnaður árið 1993. Á tíu ára afmæli skólans árið 2003 urðu skáksveitir skólans Íslandsmeistarar bæði í stúlknaflokki og opnum flokki en Helgi segir að skólinn hafi verið með skákstarf frá upphafi og þá aðallega í gegnum tómstundastarf hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR). Afraksturinn kom því fljótlega í ljós en á fyrsta borði tefldi Hjörvar Steinn Grétarsson, nú stigahæsti skákmaður landsins, þá aðeins 9 ára gamall. Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari og liðsmaður skáksveitar Fjölnis í efstu deild á Íslandsmóti skákfélaga kom svo símleiðis inn í miðjan þáttinn og ræddi við þá Helga og Kristján Örn. Umræðuefnið var meða annars fjölmennt, skemmtilegt og sterkt tveggja daga atskákmót taflfélaga sem lauk í Taflfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi með sigri Víkingaklúbbsins og Íslandsmót skákfélaga en skáksveit Fjölnis trjónir þar nú eitt liða á toppnum með fullt hús stiga eftir að fyrri hluta keppninnar hefur farið fram. Ljóst er að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður á milli skákdeildar Fjölnis, Taflfélags Reykjavíur og Víkingaklúbbsins en síðari hluti keppninnar verður tefldur dagana 29. febrúar til 3. mars á næsta ári.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}