{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/5b52e6df\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3610,"description":"FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalíf og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands eru gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni. Meginefni þáttarins er umfjöllun eða hugvekja um nýafstaðið heimsmeistaraeinvígi indverska áskorandans Gukesh Dommaraju og heimsmeistarans Ding Liren frá Kína. Einvíginu lauk með sigri Gukesh 7,5-6,5. Gukesh er þar með nýr heimsmeistari og  langyngsti heimsmeistari skáksögunnar. Hann er aðeins 18 ára gamall og svo skemmtilega vill til að hann er einnig átjándi maðurinn til að hljóta þennan eftirsótta titil. Þeir félagar ræddu nýja bók eftir Sigurbjörn sem kom út í sumar. Hve þung er þín krúna er söguleg skáldsaga sem segir frá heimsmeistaraeinvíginu í skák á Íslandi á nýstárlegan hátt. Hún greinir frá því hvernig íslensku skipuleggjendurnir tókust á við margvísleg vandamál sem komu upp við skipulagningu einvígisins og það hvernig þeir Spasskí og Fischer tókust á við álagið og sundrungina sem kom upp i herbúðum beggja aðila sumarið 1972 þegar skák varð miðdepill heimsfréttanna. Einnig ræddu þeir starf Skákskóla Íslands, helstu áherslur og framtíðarplön.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}