{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Metþátttaka á Reykjavíkurskákmótinu 2024: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/5c63a5b1\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3444,"description":"Ritstjórar www.skak.is, þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhanesson FIDE meistari kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Tilgangurinn var að fara yfir Reykjavíkurskákmótið sem hefst 15. mars næstkomandi. Uppselt er á mótið en skráðir keppendur eru 429 frá 49 þjóðlöndum. Í ár eru 60 ár liðin frá því að fyrsta Reykjavíkurskákmótið fór fram í Lídó árið 1964. Þá var mótið lokað, eða svokallað boðsmót, og voru keppendur 14 talsins. Sigurvegari mótsins var fyrrverandi heimsmeistari í skák, sjálfur töframaðurinn frá Riga, Mikhail Tal en hann hlaut 12,5 vinning í 13 skákum. Þáverandi heimsmeistari kvenna, Nona Gaprindashvili, var einnig á meðal keppenda.Eins og áður hjá þeim félögum var farið um víðan völl í spjalli um skákina, sagðar skákfréttir frá viðburðum hér heima og erlendis, spáð í spilin um hver verður næsti heimsmeistari í skák, spilað hljóðbrot þar sem Magnus Carlsen syngur rapplag sem kallast Hvem Stjal Spenolen eða Hver stal andlitskreminu með rapparanum Mr. Pimp-Lotion og margt fleira. Sjá slóð: Magnus Carlsen is Singing His Rap Song!Stóra spurningin sem ekki náðist að svara í þættinum er: Verður Hans Moke Niemann umdeildasti skákmaður heims með á Reykjavíkurskákmótinu 2024? Það kemur í ljós í kvöld eða á morgun en á meðan við bíðum...Chess speaks for itself!","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}