{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Erum við í raun öll ein skákfjölskylda? - Björn Þorfinnsson, Gunnar Freyr Rúnarsson, Sigurður Þórðarson og Haukur Hauksson","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/6008ccfb\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3245,"description":"Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum eru Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari í skák og fyrrverandi ritstjóri DV, Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins, Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, og Haukur Hauksson, fréttaritari Útvarps Sögu.\nBjörn kemur símleiðis inn í þáttinn og ræðir Ólympíumótið í skák og gengi íslensku liðanna þegar sjöunda umferð stendur yfir og fjórar umferðir eru eftir. Einnig er farið yfir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur, þar sem ungir skákmenn vöktu mikla athygli. Jósef Ómarsson, 15 ára, sigraði í A-flokki og hinn aðeins átta ára gamli Helgi Fannar Óðinsson vann opna flokkinn.\n Í þættinum er einnig fjallað um þátttökubann rússneskra og hvítrússneskra landsliða og í því samhengi velt upp hvort kjörorð FIDE, „Gens una sumus“ – við erum ein fjölskylda – standist þegar stríð, stjórnmál og trúarbrögð teygja anga sína inn í skákheiminn. \nÞá er fjallað um þá óvenjulegu ákvörðun beggja ísraelsku landsliðanna að gefa viðureignir sínar í sjöttu umferð vegna Jom kippúr, helgasta dags gyðingdómsins, eftir að ekki náðist samkomulag um breyttan keppnistíma.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}