{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/603ced8c\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":2971,"description":"Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum.\nAðalheiður Ámundadóttir ræðir við Rósu Björk um Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina. \nMeðal þess sem kemur fram í þættinum:\nFormaðurinn vill halda dyrum opnum en ekki lokuðum. \nForystan þurfi að leggja við hlustir þegar rúm 93% kjósenda VG ætla að segja já samkvæmt nýrri könnun og um 65% eru hlynnt aðild.\nNokkrar kanónur í flokknum eru búnar að lýsa afstöðu sinni opinberlega. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður ætlar að segja nei í ágúst, Stefán Pálsson starfar með Áfram Ísland og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungum Sjálfstæðis- og Miðflokksmönnum í baráttu fyrir NEI. \nFormaðurinn segir fjölbreyttar skoðanir endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar.\nLífskjör og staða alþjóðamála eigi stærstan þátt í viðhorfsbreytingu til ESB.\nÁherslur VG þurfi að heyrast við samningaborðið verði viðræðum haldið áfram: náttúruvernd, auðlindir, hagsmunir bænda, sjávarútvegsmál, réttindi vinnandi fólks og viðbrögð við tækninýjungum.\nRíkisstjórnin hafi ekki haldið vel á málinu og Samfylkingin verið fjarverandi í kosningabaráttunni.\nRíkisstjórnin gagnrýnd fyrir virkjanablæti, aukið atvinnuleysi, lakan árangur í efnahagsmálum og fyrir að bregðast ekki nógu kröftuglega við útlendingaandúð.\nNATO er að veikjast og ný bandalög gætu orðið til.\nVinstri græn hafa rætt mikið um fortíðina og átt í uppgjöri. Nú vill formaðurinn snúa sér og flokknum að framtíðinni.\n \nÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}