{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/7e43fcea\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":1975,"description":"Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað að pæla í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi og hvaða áhrif hún gæti haft. \nMeðal þess sem rætt er í þættinum:\nForsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót Verkamannaflokksins\nEvrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndast\nTollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsins\nSegi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESB\nÍ fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almennings\nVerkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur Evrópuflokkur\nNoregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EES\nÁhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við Kópavog\nÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}