{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/7fed5456\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3142,"description":"Ert þú lántakandi á verðtryggðu láni með stökkbreyttan höfuðstól eftir þráláta verðbólgu síðustu ár og viltu skilja af hverju það hækkar bara og hækkar? Veltirðu fyrir þér hvenær og hvernig verðtryggða lánið þitt lækkar einhvern tímann? Í þessari umfjöllun er útskýrt á mannamáli hvernig síhækkandi vísitala hefur langvarandi áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána, hvernig þau eru reiknuð og hvað þarf til að þau lækki. Þá eru borin saman lánakjör hér á landi og í Danmörku með tilliti til lánaforma og vaxtakjara.\nRætt er við Helgu Björgu Helgadóttur á 68. aldursári sem hugar brátt að starfslokum. Hún keypti íbúð árið 2005 í Norðlingaholti ásamt eiginmanni sínum. Þau endurfjármögnuðu fasteignalánin í Covid 2020 þegar vextir voru sögulega lágir.\nEftir þrálátt verðbólguskeið og hátt vaxtastig síðustu ár hafa verðtryggðu lánin á íbúð Helgu hækkað um 11 milljónir og greiðslubyrðin tvöfaldast.\nRætt er við Ragnhildi Þórðardóttur sálfræðing og heilsuáhrifavald betur þekkt sem Ragga nagli, sem hefur búið í Kaupmannahöfn síðan 2009 og keypti íbúð þar með hefðbundnu óverðtryggðu láni.\nKjör Helgu og Ragnhildar eru borin saman því munurinn er mikill. Á meðan 11 milljónir hafa hlaðist á höfuðstól verðtryggðu láni Helgu hefur Ragnhildur greitt niður 16 milljónir af sínu hefðbundna óverðtryggða láni í Danmörku.\nSkýrt verður út fyrir fólki hvernig hin svokallaða vísitala neysluverðs þróast með hækkandi og lækkandi verðlagi á vörum og þjónustu sem við landsmenn kaupum og hvernig það hækkar eða lækkar lánin okkar.\nStærðfræðingur Ásta Jenný Sigurðardóttir útskýrir hvernig síhækkandi vísitala hækkar verðtryggð lán landsmanna og forstöðumaður hjá áhættustýringu Íslandsbanka útskýrir hvernig verðtryggðu lánin eru reiknuð með vísitöluhækkun.\nViðmælendur í þættinum:\nHelga Björg Helgadóttir\nRagnhildur Þórðardóttir\nBreki Karlsson\nÁsta Jenný Sigurðardóttir\nKristján Rúnar Kristjánsson\nBendikt Gíslason\nHandrit og dagskrárgerð: Helga Arnardóttir\nHljóðvinnsla og tónlist: Bragi Þór Hinriksson\nMynd:...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}