{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Filippseyjar og Íslandsmótið í netskák: Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/9966c098\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3365,"description":"Gestir þáttarins eru skákmeistararnir Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson. Þorvarður hefur margoft heimsótt Filippseyjar en eiginkona hans er ættuð frá borginni San Carlos sem er á eyju sem heitir Negros. Hann segir sögu af ferðalagi sínu á fjölmennt helgarskákmót sem haldið var í borginni Bacolod og  kynnum sínum af grjóthörðum filippseyskum skákmönnum. Þorvarður segir það algengt að teflt sé upp á peninga í verslunarmiðstöðvum og því oft viðhöfð ýmis brögð í tafli eins og að hagræða úrslitum á efstu borðum í lokaumferðum skákmóta. Í síðari hluta þáttarins var slegið á línuna til Birkis Karls Sigurðssonar þáttastjórnanda hjá Chess After Dark en hann hefur komið að skipulagningu á Íslandsmótinu í netskák sem hefst 25. ágúst nk. Óánægju hefur orðið vart hjá einhverjum skákmönnum þar sem 13 keppendur af 16 fá boðsæti beint í útsláttarkeppnina og þurfa því ekki að tefla í sjálfri undankeppninni eins og aðrir skákmenn til að tryggja sér sæti í mótinu. Þrír af sterkustu netskákmönnum landsins fengu ekki boð en það eru alþjóðlegu meistararnir Arnar Gunnarsson, Jón Viktor Gunnarsson og Davíð Kjartansson en þeir hafa margoft orðið Íslandsmeistarar í netskák og staðið uppi sem sigurvegarar á sterkum netskákmótum undanfarin ár. Einnig hefur það vakið athygli að Rafíþróttasamband Íslands heldur mótið en ekki Skáksamband Íslands. Há peningaverðlaun eru í boði en verðlaunafé er ein milljón króna og verður sýnt beint frá mótinu í Sjónvarpi Símans. Heyra má svar Birkis Karls við ofangreindum athugasemdum í þættinum.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}