{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/9cecaa8e\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":2299,"description":"„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum.Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þessi orð taldi að þeim yrði slepptÍ tölvupósti var sagt að arkitektinn sé „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sigBorghildi hafði verið sagt upp störfum hjá borginni þegar umsögnin var skrifuð og starf hennar lagt niðurUnnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvótaHröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingumMilliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratugGera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinuHagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldiðInnanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“Þátturinn er öllum opinn en Gímaldið – sem að hluta til dregur nafn sitt af Græna gímaldinu – er fjölmiðill í áskrift. Hlustaðu á þáttinn ...og ef þú vilt meira svona efni þá hvetjum við þig til að gerast áskrifandi eða leggja til frjálst framlag á www.gimaldid.is ","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/VTJtNBrx8_YwqdE0LIzn1FGztcT0hoJmHHRoDjpiaYg/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS8yOWRh/NGRmMTYxMmRkZWJi/NDk3YzgwZWY0ZjEz/ZTU4YS53ZWJw.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}