{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Friðrik Ólafsson 90 ára goðsögn","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/b58cb8a3\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3354,"description":"Friðrik Ólafsson er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann er þekktasti og sterkasti skákmeistari sem Íslendingar hafa eignast og var á meðal sterkustu skákmanna heims á sínum tíma. Friðrik var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Hann á glæsilegan starfsferil að baki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Á sunnudaginn kemur eða þann 26. janúar fagnar Friðrik 90 ára stórafmæli sínu. Af því tilefni verður opið hús í Hörpu. Samkoman hefst kl. 16:00 og þætti meistaranum vænt um að sjá sem flesta. Hlusta má á viðtalið í spilaranum.Friðrik Ólafsson: Af vef Skáksögufélagsins.Menntun: Stúdentspróf frá MR 1955. Lögfræðipróf frá HÍ 1968.Starfsferill: Fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu 1968-1974. Forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) 1978-1982. Ritstjóri Lagasafns Íslands 1982-1983. Skrifstofustjóri Alþingis frá 1984. Varð sex sinnum Íslandsmeistari í skák, fyrst 1952, og Norðurlandameistari í skák 1953 og 1971. Alþjóðlegur skákmeistari 1956 og fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák 1958. Varð sigurvegari á skákmótinu í Hastings 1955-1956, í Beverwijk í Hollandi 1959, Í Marianske Kasne í Tékkóslóvakíu 1961, á alþjóðlegum skákmótum í Reykjavík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975. Veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar 1982-1984. Sat í nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins 1989 sem vann að undirbúningi frumvarps til laga um Skákskóla Íslands og stórmeistaralaun.Ritstörf: Lærið að tefla, kennslubók í skák, ásamt Ingvari Ásmundssyni, 1958. Heimsmeistaraeinvígið í skák 1972, ásamt Freysteini Jóhannssyni, 1972. Við skákborðið í aldarfjórðung, 1976. Auk þess fjöldi greina um skák í tímaritum og dagblöðum.Viðurkenningar: Sæmdur titlinum alþjóðlegur stórmeistari í skák 1958, fyrstur Íslendinga. Riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1972 og stórriddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1980. Gerður að heiðursborgara Reykjavíkur og aðalheiðursfélaga FIDE, 2015.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}