{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Nýkrýndur Íslandsmeistari í skák: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/bce49866\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3488,"description":"Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Íslandsmótinu í skák lauk á laugardaginn þegar lokaumferðin fór fram í Mosfellsbæ. Fyrir lokaumferðina hafði Helgi Áss Grétarsson þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en þá var hann einum og hálfum vinningi á undan næsta manni, Vigni Vatnari Stefánssyni, fráfarandi Íslandsmeistara. Helgi endaði mótið á stuttu jafntefli við Vigni og fór einn keppenda taplaus í gegnum mótið.Í þættinum ræða þeir Íslandsmótið, andstæðinga Helga í mótinu, stöður sem upp komu eða öllu heldur hvernig Helgi undirbjó sig og nálgaðist einstaka skákir sínar allt eftir hver var andstæðingur hans hverju sinni. Helgi ræddi 5 ára planið sem hann setti sér árið 2018, sagði frá Íslandsmeti sínu í blindskák en árið 1997 tefldi hann blindskákafjöltefli við 11 manns og stendur það met enn. Í lokin talaði Helgi um og lýsti aðdáðun sinni á Indverjanum unga Gukesh Dommaraju sem fyrr í mánuðinum sigraði á áskorendamóti FIDE og vann sér þar með réttinn til að tefla við núverandi heimsmeistara í skák, Kínverjann Ding Liren síðar á árinu.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}