{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/ce5e3286\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":1888,"description":"Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á kosningakerfinu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við hann um áhrif ójafns atkvæðavægis á stjórnmálin, um tillögur hópsins og möguleg áhrif þeirra.\nHópurinn leggur til að 36 þingmenn verði kjördæmakjörnir, sex þingmenn úr hverju kjördæmanna sex. Hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti og þeim útdeilt til kjördæma í hlutfalli við tölu kjósenda á kjörskrá. Þá leggur hópurinn til að úthlutun jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt svo hún verði stöðugri.\nMeðal efnis í þættinum: \nFramsóknarflokkurinn hagnaðist mest á misvægi milli flokka á 20. öld. Árið 1931 fékk flokkurinn 36 prósent atkvæða en 58 prósent þingmanna.\nLandsbyggðin nýtur forréttinda í atkvæðavægi á Íslandi og í Noregi en hefur enga aukamenn í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og á Grænlandi.\nEngin gögn sýni að hagur landsbyggðarinnar sé betri þar sem hún nýtur forréttinda í kosningakerfinu.\nÓlafur segir áhyggjur af hagsmunum landsbyggðarinnar minna á þá fyrirgreiðslupólitík sem var allsráðandi á síðustu öld.\nHvert kjördæmi fengi sex kjördæmissæti og 27 jöfnunarsæti myndu skiptast á milli þeirra eftir íbúafjölda.\nNorðausturkjördæmi fengi aðeins sex þingmenn en Kraginn fengi átján þingmenn.\nHringekja jöfnunarsæta á kosninganótt yrði minna vandamál með tillögum hópsins og uppákoma á borð við Borgarnesendurtalninguna 2021 endurtæki sig ekki.\nSamfylkingin fékk þrjá þingmenn í kosningunum 2016, alla af landsbyggðinni, þótt flokkurinn hefði mest fylgi í Reykjavík. Tillögur hópsins hefðu breytt því.\nRéttur til að greiða atkvæði til vara gæti komið í veg fyrir að atkvæði til smáflokka falli dauð. Hópurinn leggur það ekki til en bendir á þann möguleika.\nÞingmenn hafa verið 63 frá 1987 og Ólafur telur mörg rök mæla með fjölgun þeirra, þótt hún sé óvinsæl.\nÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}