{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Landsliðskonurnar Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/d15bc3bb\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3403,"description":"Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir, landsliðskonur í skák, segjast afar ánægðar með Reykjavíkurskákmótið sem heppnaðist vel þrátt fyrir að þeim finnist að þeim hefði mátt ganga betur eins og gengur. Stemningin á slíkum mótum sé einstök og gaman að sjá hversu margir sæki mótið aftur ár eftir ár. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Við skákborðið en Kristján Örn Elíasson ræddi við þær Hallgerði og Veroniku.Þær segja ákveðinn kjarna fólks sem telji um 150 til 200 manns mæti á hverju ári á mótið og þær séu farnar að kynnast vel fólkinu innan þess hóps og það sé alltaf jafn gaman að taka þátt. Þá sé ekki síður gaman að taka þátt í þeim viðburðum sem fara fram til hliðar við mótið sjálft eins og pub-quiz, hraðskákmót og þá fari erlendir keppendur oft Gullna hringinn sem þeim finnist afar skemmtilegt. Þær segjast finna vel fyrir því að þátttakan á mótinu hafi aukist verulega undanfarin ár og það sé auðvitað jákvætt en það séu þó orðin svolítil þrengsli á svona fjölmennu Reykjavíkurskákmóti. Hallgerður og Veronika ræddu um konur í skák, sögðu skoðun sína á hvort munur væri á styrkleika kvenna og karla við skákborðið, samskipti kynjanna, ferðalög erlendis, Ólympíumót, landsliðsþjálfara, mikla samkeppni stúlkna um sæti í kvennalandsliðinu og margt fleira áhugavert og skemmtilegt.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}