{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og ritstjóri DV.is","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/d7fd19c3\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3584,"description":"Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og ritstjóri DV.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um Skákþing Íslands sem nú stendur yfir, nýafstaðið áskorendamót FIDE sem fram fór í Toronto í Kanada þar sem átta af sterkustu skákmönnum heims kepptu tvöfalda umferð allir við alla um réttinn til að skora á Ding Liren núverandi heimsmeistara í skák síðar á árinu. Einnig ræddu þeir fráfall fyrrverandi stórmeistara Isa Kasimi (Igors Rausis) frá Lettlandi, sem lést fyrr á árinu (f. 1961 - d.2024), en hann var gripinn glóðvolgur við svindl í miðju skákmóti á salerni þar sem hann notaði símatölvu sér til aðstoðar. Igor Rausis náði mest 2.686 elo-stigum árið 2019 eða sama ár og hann var staðinn að verki í opna skákmótinu í Strassborg en þá var hann elsti maðurinn á lista FIDE yfir 100 stigahæstu skákmenn heims. Rausis var sviptur stórmeistaratitli sínum og fékk sex ára keppnisbann af siðanefnd/dómstóli FIDE í desember sama ár. Þáttastjórnandi, Kristján Örn Elíasson, sat í rannsóknar- og ákærunefnd FIDE á þessum tíma og var einn þriggja meðlima Fair Play nefndar FIDE sem rannsakaði málið og gaf út ákæru á hendur Igor Rausis.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}