{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Á spjalli við Helga Áss Grétarsson stórmeistara og Íslandsmeistara í skák","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/e6396190\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3707,"description":"Það er stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák sem setst niður Við skákborðið að þessu sinn. Þeir Kristján Örn ræða um nýlokið Borgarskákmót sem lauk með sigri Helga, Ólympíuskákmótið sem haldið verður í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.-23. september nk. Þeir töluðu við Björn Ívar Karlsson nýráðinn skólastjóra Skákskóla Íslands sem í morgun fór utan með stóran hóp barna og unglinga á EM ungmenna í Prag í Tékklandi. Um er að ræða 23 keppendur, 4 þjálfara og fjölda aðstandenda eða alls um 60 manns. Þetta mun vera langstærsti hópur sem Skáksamband Íslands hefur sent til keppni á erlenda grund. Helgi sagði frá undirbúningi stórmeistarans Vignis Vatnars Stefánssonar fyrir Ólympíumótið en hann hefur verið iðinn við að keppa á mótum erlendis í sumar, hækkað mikið á skákstigum og hefur Helgi mikla trú á okkar yngsta stórmeistara.Einnig ræddu þeir um flesta af sterkustu skákmönnum heims sem hafa verið að keppa sín á milli að undanförnu, s.s. á Saint Louis at- og hraðskákmótinu sem Alireza Firouzja vann, Sinquefield Cup mótinu sem er í fullum gangi, væntanlegt einvígi Magnúsar Carlsen og Hans Niemann í París í byrjun næsta mánaðar og heimsmeistaraeinvígi núverandi heimsmeistara kínverjans Ding Liren og indverjans Dommaraju Gukesh en það mun fara fram í Singapúr dagana 20. nóvember til 15. desember nk. Það er því hægt að fullyrða að heimsmeistaratitillinn verður áfram í Asíu.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}