{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Kjartan Briem formaður skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdastjóri Isavia ANS","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/f59d597f\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3653,"description":"Kristján Örn tekur á móti Kjartani Briem formanni skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdarstjóra Isavia ANS en félagið er dótturfélag Isavia sem annast flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Í upphafi þáttar segir Kjartan aðeins frá starfi eða hlutverki Isavia ANS en svo snúa þeir sér að starfinu hjá Skákdeild Breiðabliks. U-25 hópur Breiðabliks tekur nú í fyrsta skipti þátt í Evrópumóti félagsliða sem fer fram í Serbíu dagana 20. til 26. október. Þrjár umferðir hafa verið tefldar og hefur liðið staðið sig ágætlega og er í 38 sæti af 84 liðum sem taka þátt í keppninni. Í síðustu umferð gerði Vignir Vatnar jafntefli við Boris Gelfand sem á sínum tíma var einn allra sterkasti skákmaður heims (2.777 elo-skákstig árið 2013) og keppti m.a. einvígi við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn í skák árið 2012. Einvígið endaði með jafntefli 6-6 en Anand hélt titlinum á oddastigum, þ.e. þeir tefldu fjórar atskákir sem enduðu með sigri Anand 2,5 - 1,5. Kjartan talar um ungu og efnilegu krakkana í skákdeildinn og vill hann sjá átak í að fjölga stúlkum í skák og að skákhreyfingin setji sér mælanlega markmið. Hann segir fákeppni á milli þeirra helst há framförum hjá þeim. Sé horft fram um nokkur ár sér hann jafnvel fyrir sér sérstaka kvennadeild í skák sem yrði þá háð á öðrum tíma en hið hefðbundna Íslandsmót skákfélaga. Margt annað kom fram í spjalli þeirra Kristjáns og Kjartans en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}