{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Gímaldið","title":"Akademíski armur Áfram Ísland og Brexit-bragur á lokasprettinum","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/fb7f0728\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3176,"description":"Hvenær er fundur fræðilegt innlegg í umræðu og hvenær er hann pólitískur áróðursfundur? Gímaldið hefur birt umfjöllun um fund nei- hreyfingarinnar Áfram Ísland með svissneskum lögfræðingi og fyrrverandi prófessor og dómara, Carl Baudenbacher, en sagan af einni lítilli bókun á sal innan Háskóla Íslands er með nokkrum ólíkindum svo ekki sé meira sagt, eins og rætt er um í þættinum. \n\nTvær vikur eru í þjóðaratkvæðagreiðslu og ritstjórn Gímaldsins veltir fyrir sér stöðunni, næstu skrefum í baráttunni og hvaða tromp já og nei fylkingar eiga uppi í erminni á lokametrunum. Einnig:  hverju tekur fólk mark á? hvaða upplýsingum er treystandi og er það virkilega þannig að fólk sé sent í heita potta gagngert til að veiða atkvæði?\n\nHelga Arnardóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir sjá um þáttinn. Meðal efnis í þættinum:\nHátíðarsalur HÍ er eingöngu ætlaður viðburðum á vegum skólans sjálfs, Baudenbacher mátti tala hvar sem er annars staðar í húsnæði HÍ, honum var aldrei „úthýst\".\nÁfram Ísland hefði aldrei getað fengið Hátíðarsalinn. Þrír fyrrverandi og núverandi fræðimenn komu að þessari bókun, sem sögð var á vegum rannsóknarseturs sem hefur verið óvirkt í mörg ár og var skráð á rannsóknarverkefni sem tengist málinu ekki neitt.\nBaudenbacher gagnrýndi rektor HÍ, utanríkisráðuneytið og RÚV fyrir fálæti í færslu á Linkedin eftir Íslandsförina, en eyddi svo þeim hluta færslunnar og skildi einungis þakkarorð eftir.\nSkoðanakannanir sýna nokkuð jafna stöðu tveimur vikum fyrir atkvæðagreiðslu (51,5% já / 48,5% nei skv. Gallup), en óákveðnum fer fækkandi og afstaða fólks er að festast.\nUmræðan er sögð hafa harðnað og líkjast Brexit, jafnvel hlutlausar upplýsingar eru afgreiddar sem áróður, og lítill markaður virðist fyrir dýpri, faglega umfjöllun úr þessu.\nStóru miðlarnir, einkum RÚV, hafa dregið úr efnislegri umfjöllun um kosti og galla aðildar. Tækifærið til að upplýsa þjóðina var í vor, ekki núna.\nLokasprettur beggja fylkinga mun líklega snúast um „maður á mann\"-aðferð...","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/i4wuLgsqprfY6xzWnWrSKbnyI5salAUo0q2BlKBPIwA/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS84YWZh/YmMwNjYyZGM5MjMw/OGU5MmNmZjJlODIx/Y2M4OS5wbmc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}