{"type":"rich","version":"1.0","provider_name":"Transistor","provider_url":"https://transistor.fm","author_name":"Við skákborðið","title":"Afreksstefna Breiðabliks: Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs","html":"<iframe width=\"100%\" height=\"180\" frameborder=\"no\" scrolling=\"no\" seamless src=\"https://share.transistor.fm/e/febcb997\"></iframe>","width":"100%","height":180,"duration":3860,"description":"Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks er gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag. Halldór ræðir afreksstefnu skákdeildar Breiðabliks og segir að ýmsum markmiðum deildarinnar hafi þegar verið náð. Máli sínu til stuðnings bendir hann meðal annars á árangur Blika í Skákþingi Reykjavíkur sem nú stendur yfir en 7. umferð þingsins verður tefld í kvöld. Þeir félagarnir ræða Title Tuesday netskákmótin á skákvefþjóninum Chess.com en nokkrir Íslendingar tefla þar reglulega eða á hverjum þriðjudegi eins og nafnið ber með sér. Þeir einir hafa þátttökurétt sem hafa fengið úthlutaðri nafnbót hjá FIDE, allt frá stórmeistaratitli (GM) og niður í kandídatatitil (CM). Þeir Halldór og Kristján tala um fjölsótta afmælisveislu Friðriks Ólafssonar sem haldin var í Hörðunni sl. sunnudag en þá fagnaði fyrsti og sterkasti stórmeistari Íslendinga fyrr og síðar 90 ára stórafmæli sínu. Fleira kemur til tals í þættinum eins og ágreiningur FIDE og nýs sambands eða félagsskapar sem heitir Free Style Chess, pólitísk afskipti eða umdeilt bann skáksambanda Norðurlandaþjóðanna á þátttöku skákmanna frá Rússlandi á mótum á Norðurlöndum vegna stríðsins í Úkraínu og margt fleira.","thumbnail_url":"https://img.transistorcdn.com/tmBtAKiPUKIVG7_lCXF2HGKs8PUON0woT2LjqmSta-c/rs:fill:0:0:1/w:400/h:400/q:60/mb:500000/aHR0cHM6Ly9pbWct/dXBsb2FkLXByb2R1/Y3Rpb24udHJhbnNp/c3Rvci5mbS9zaG93/LzM3ODk0LzE3MDU5/NDEwOTktYXJ0d29y/ay5qcGc.webp","thumbnail_width":300,"thumbnail_height":300}