Frelsi og fullveldi

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til opins umræðufundar á Catalínu í Hamraborg Kópavogi, mánudagskvöldið 26. febrúar síðasliðinn en þetta var sjöundi opni fundur félagsins frá stofnun þess sl. vor. Fundarefnið var löggæsla og landamæraeftirlit á viðsjárverðum tímum. Framsögumenn voru þeir Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri og fv. alþingismaður og Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur og formaður tollvarðafélags Íslands. Funarstjóri var Anna Björg Hjartardóttir.

Á fundinum var ályktun um brýnar aðgerðir til að tryggja stjórn á landamærum landsins borin upp og samþykkt fyrir fullu húsi með margföldu lófataki. Hægt er að skrá sig á póstlista og gerast félagsmaður og sjá ljósmyndir frá fundinum með því að fara á Facebooksíðu félagsins.

Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi ræðumanns hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu ræðumanns og ýta síðan á spilarann.

Tímalínur ræðumanna:

0:00:00  Geir Waage, formaður málfundafélagsins
0:05:16   Anna Björg Hjartardóttir
0:05:55   Guðbjörn Guðbjörnsson, framsögumaður
0:38:55   Karl Gauti Hjaltason, framsögumaður
1:06:10    Ólafur Ísleifsson les tillögu að ályktun
1:13:14    Jóhann R. Benediktson
1:25:37   Guðbjörn Jónsson
1:30:49   Arndís Ósk Hauksdóttir
1:34:00   Valdimar H. Jóhannesson
1:38:10    Jóhann R. Benediktsson
1:40:17    Ragnheiður Svava Þórólfsdóttir
1:42:10   Sverrir Sverrisson
1:45:50   Halldór Sigurþórsson
1:47:15    Geir Waage
1:57:42   Karl Gauti Hjaltason, framsögumaður
2:00:00  Guðbjörn Guðbjörnsson, framsögumaður
2:07:00   Anna Björg ber upp ályktunina sem lá fyrir
2:07:36   Geir Waage, formaður slítur fundi

What is Frelsi og fullveldi?

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar.

Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar.

Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki.

Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin.

Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga.

Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.