Við skákborðið

Kristján Örn tekur á móti Vigni Vatnari Stefánssyni, stórmeistara og stigahæsta skákmanni landsins í stúdíóið. Þeir ræða Íslandsmótið í skák og glæsilegan árangur alþjóðlega meistarans Hilmis Freys Heimissonar sem varð einn efstur á mótinu. Hilmir Freyr er því nýr Íslandsmeistari í skák! Þeir fjalla um íslenska skáklandsliðið og verkefni þess á árinu, frábæran árangur Vignis Vatnars á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi þar sem hann varð á meðal efstu manna og tryggði sér sæti á Heimsbikarmótinu sem fer fram á næsta ári. Vignir er sjóðheitur í skákinni um þessar mundir og hefur hækkað verulega á alþjóðlegum skákstigum undanfarnar vikur. Þeir Kristján og Vignir ræddu margt annað skemmtilegt í spjalli sínu eins og svo oft áður. Gaman að þessu!

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.