Heimsendir

Ég er að koma úr sýningarviku í japanska leikhúsinu þar sem við settum upp sýningu um "rakugo" menningu sem er japanskt uppistand (sitjandi). Þetta var frumraun mín með japönskum leikhóp og mikil reynsla og lærdómur. Önnur umræðuefni þáttarins eru drykkja og reykingar í Japan, eiturlyf og harðar refsingar við þeim, smáatriði í japönsku og fleira. 

Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta! Ertu með hugmynd að umræðuefni? Langar þig að fræðast um eitthvað sérstakt í Japan? Sendu mér þá línu eða skildu eftir komment á Facebok hópnum Heimsendir. 
Yoroshiku onegai shimasu!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo