Útvarp Bændablaðið

Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík en nú eru komnar fram hugmyndir um að hún víki fyrir uppbyggingu á aðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Víking í Fossvogsdalnum. Við fáum að heyra um sögu og rekstur Markar sem hefur verið í Fossvogsdalnum frá því hún var stofnuð árið 1967 og samskiptunum við Reykjavíkurborg um flutning starfsseminnar.

What is Útvarp Bændablaðið?

Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.