Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og hugmynd nokkurra þingmanna um sjö ríkja bandalag við Norður-Atlantshaf sem inniheldur bæði Kanada og Bandaríkin.
Meðal þess sem rætt er í þættinum:
- Haustþingið fer rólegar af stað en boðað var. Harkan sem búist var við af stjórnarandstöðunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu lætur bíða eftir sér.
- Stemningin við stefnuræðuna, harðari tónn Þorgerðar Katrínar, ummælin um AfD og strengurinn milli valkyrjanna þriggja.
- Þingmálaskráin inniheldur 153 mál, þar af 127 lagafrumvörp. Stiklað á stóru í þættinum og farið yfir valin þingmál.
- Öryggisvottun á dagskrá þingsins. Ísland er herlaus þjóð sem kann ekki að geyma leyndarmál.
- Tóbak, rafrettur og nikótínvörur sameinuð í einn lagabálk og sterk hagsmunaöfl munu beita sér gegn því.
- Ráðherra virðist stefna að banni við hvalveiðum en segir það ekki beinum orðum.
- Auknar heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi, lengra gæsluvarðhald, húsleit án dómsúrskurðar og hvers vegna víðtækar heimildir verða að daglegu verklagi.
- Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta og erfðaupplýsingar. Hugtök á borð við gagnagrunnur og upplýst samþykki aftur á dagskrá
- Nokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu um að Ísland hafi frumkvæði að því að mynda sjö ríkja fríverslunarbandalag við Norður-Atlantshaf og fái Bandaríkin, Bretland, Kanada, Grænland, Færeyjar og Noreg að borðinu.
- Ræða Ursulu von der Leyen: Evrópa á krossgötum og enginn slaki gagnvart uppgangi öfgaafla.
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/