Heimsendir

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT Á PATREON. ÞÚ GETUR VERIÐ ÞAÐ LÍKA!
Náðu í Patreon appið, finndu Heimsendi, og fáðu fullan aðgang að öllum þáttum fyrir svo lítið sem 700kr á mánuði.

Fjölskyldan mín er í Japan og við erum að ferðast. Í þessum eintalsþætti fjalla ég um ferðalagið frá Tokyo - Hakone - Kyoto - Osaka - Nara - Okinawa. Þessi þáttur nýtist sem skemmtun sem og ferðatips fyrir verðandi Japansfara. Takk fyrir að hlusta!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo