Heimsendir

Er Össur í Japan? Er hægt að kaupa ást? Hvaða áhugamál eru vinsæl hjá japönum og hver er munurinn á þeim og íslendingum? Í þessum þætti ræðum við Brynjólfur Magnús Brynjólfsson, betur þekktur sem Binni, um upplifun útlendinga í Japan, menningarmun og líkindi. 

Kæri hlustandi, ertu með hugmynd að umræðuefni? Komdu þá í Facebookhópinn Heimsendir og deildu hugmyndunum. Þú getur líka sent mér skilaboð beint. Yoroshiku onegai shimasu!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo