Við skákborðið

FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks ræða um Íslandsmót skákfélaga sem lauk um síðustu helgi. Sigurbjörn minnist Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák og eins af fremstu skákmönnum sögunnar, sem lést á fimmtudaginn í síðustu viku áttatíu og átta ára að aldri. Árið 1969 náði Spassky hápunkti ferils síns þegar hann varð heimsmeistari í skák eftir sigur á Tigran Petrosjan. Þremur árum síðar eða árið 1972 háði hann eitt frægasta einvígi skáksögunnar við bandaríska skákmeistarann Bobby Fischer í Laugardalshöllinni  sem kallað hefur verið „einvígi aldarinnar“. Einvígið vakti heimsathygli og var táknrænt fyrir spennuna milli austurs og vesturs á tímum kalda stríðsins.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.