Gímaldið

Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum:
  • Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en Sjálfstæðisflokkurinn
  • Velgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir átta árum
  • Vinstri græn eru að stimpla sig aftur inn í umræðuna bæði í kosningunum og landsmálunum
  • Vinstri flokkarnir hafa enn vinninginn í landsmálunum og hafa bætt meira við sig en hægri flokkarnir
  • Hefði Samfylkingunni gengið betur með Guðmund Inga Þoroddsson innanborðs?
  • Verður Jónas Már Torfason næsti varaformaður Samfylkingarinnar?
  • Hvað gera kosningaúrslitin fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur og stöðu hennar í Sjálfstæðisflokknum?
  • Er slakt gengi Framsóknar í kosningunum nýjum formanni flokksins að kenna?
 
Tölfræðin sem stuðst er við í þættinum er frá Brynjólfi Gauta Guðrúnar Jónssyni, tölfræðingi þáttarins Sirkabát, en Brynjólfur heldur úti vefsíðunni metill.is
 
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡