Heimsendir

Hvar eru allar geimverurnar? Í þessum þætti fæ ég leikkonuna Ellen M. Bæhrenz til liðs við mig til að ræða geimverur. Við spyrjum spurninga á borð við: Hvað er Area 51? Hvernig líta geimverur út? Eru geimverur ský? Hvað ef við erum alein?

Show Notes

Við vitum að það eru milljarðar stjarna í Vetrarbrautinni. Við vitum að meðal þeirra leynist mikill fjöldi reikistjarna á borð við Jörðina okkar. Ef við göngum út frá því að líkt og á Jörðinni geti líf sprottið upp á öðrum reikistjörnum er ekki úr vegi að segja að það sé nokkuð líklegt að geimverur séu til. En hvar eru þær? 

Í þessum þætti fæ ég leikkonuna Ellen M. Bæhrenz til liðs við mig til að ræða geimverur. Við spyrjum spurninga á borð við: Hvað er Area 51? Hvernig líta geimverur út? Eru geimverur ský? Hvað ef við erum alein?

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo