Við skákborðið

Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjararáðs viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur þáttarins. Hann segir frá skákstarfinu í KR, fer yfir nýlega skákatburði, mót og sumarstarf fram undan og margt fleira. Hann ræðir við Kristján Örn um að aðalfund Skáksambands Íslands sem haldinn verður á laugardaginn en þar verða lagðar fram tillögur um lagabreytingar og aðildargjöld. Þeir ræða um framboð Gunnars Björnssonar framkvæmdastjóra SÍ í stöðu gjaldkera Evrópska skáksambandsins (ECU) en kjörtímabilið er til fjögurra ára. Gunnar er á lista (ticket) hjá Lukasz Turlej, framkvæmdastjóra FIDE, sem býður sig fram gegn sitjandi forseta sambandsins, Zurab Azmaiparashvili. Kosningarnar fara fram laugardaginn 18. júlí í Búkarest í Rúmeníu eða samhliða aðalfundi sambandsins.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.