Heimsendir

Bergþór Másson, fellow PHD hlaðvarpsþáttastjórnandi, kom til Japan eftir langt ferðalag um heiminn - Ísrael, Indland og Indonesía, svo eitthvað sé nefnt. Í þættinum ræðum við epíkina sem finnst í Japan, heragann, fortíðarþránna og hæfileikann til að skeyta litlu um skoðanir annarra. En við ræðum líka þrældóminn sem gerir Japan óskiljanlegt í augum svo margra. 

Kæru hlustendur, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þið viljið fræðast um Yakuza, verstu bjarnarárás í sögu Japans, Woke-menningu í Japan og fleira er ráð að skrá sig á Patreon eigi síðar en núna. Takk fyrir að hlusta!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo