Athyglisbrestur á lokastigi

Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR: Bergþóra og Magga Stína.

Show Notes

Það hlaut að koma að þessu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR. 

Bergþóra(mamma Lóu) og Magga Stína(mamma Sölku) ræða við dætur sínar um norræna glæpaþætti, hekl, barnabörnin sín, kisur og hvort símar séu verkfæri djöfulsins. Reyndar var svo gaman að tala við þær að við þurftum að skipta þættinum í tvennt og kemur seinni hlutinn í næstu viku.

What is Athyglisbrestur á lokastigi?

https://www.patreon.com/athyglisbrestur Athyglisbrestur á lokastigi er vikulegur hlaðvarpsþáttur um þjóðfélagsmál, poppmenningu og samtímann útfrá sjónarhorni tveggja kvenna sem komnar eru yfir 23 ára aldurinn en eru ekki ennþá orðnar þrítugar sem þýðir að þær vita allt best og eru ennþá...heitar? Salvör Gullbrá og Lóa Björk eru sviðslistakonur, grínistar og sérfræðingar í poppkúltúr.