Heimsendir

Japanskur matur er miklu meira en sushi og ramen. Við Jón Foss Guðmundsson, verðandi ferðamálafræðingur, förum yfir japanska matarmenningu og gestristni. Hvað geta íslendingar lært af japönum og hvað geta japanir lært til baka? 

Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú, kæri hlustandi, vilt meira af Heimsendi þá geturðu skráð þig á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum. Yoroshiku onegai shimasu!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo