Heimsendir

5.000 sjómílur, 15.000 eyjar, búrhvalir, höfrungar, túnfiskar og hreindýr. Allt undir einum hatti - Bering haf. Mikið ævintýri að baki og hér kemur ferðasagan fyrir ykkur að njóta. Ég sigldi frá Nome, Alaska til Osaka á 21 degi og þaðan áfram um suðvestur Japan í hátt í mánuð.

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo