Gestir þáttarins í dag eru Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari, Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA og stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák. Umræðuefnið er óvæntu uppákomurnar sem áttu sér stað á heimsmeistaramótunum í atskák og hraðskák sem fram fóru í New York á milli jóla og áramóta. Annars vegar er um að ræða "Stóra gallabuxnamálið" sem upp kom eftir áttundu umferð í atskákinni og hins vegar að heimsmeistaratigninni í hraðskák var skipt á milli Magnúsar Carlsen og Ian Nepomniachtchi að ósk þeirra beggja þrátt fyrir að reglur mótsins segðu að tefla skyldi þar til annar stæði uppi sem sigurvegari. Það var forseti FIDE, Arkady Dvorkovich, sem tók þessa ákvörðun þvert að reglur mótsins. Meira um þessar óvæntu og umdeildu uppákomur í spilaranum.
What is Við skákborðið?
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.