Heimsendir

Er heimsendir í nánd? Mun Pútín nota kjarnorkuvopn í Úkraínu? Er þriðja heimstyrjöldin á næsta leiti? Í þessum þætti fjalla ég almennt um kjarnorkustríð og hvort það sé eitthvað sem við ættum að hafa áhyggjur af. 

Kæri hlustandi, komdu líka á Patreon fyrir aðgang að öllum þáttum! Skráðu þig á patreon.com/heimsendir, þá verð ég svo þakklátur!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo