Gímaldið

Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd.

Árni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni.
Erla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina. 

Meðal þess sem fram kemur:
  • Feðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.
  • Viðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunum
  • Einn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum. 
  • Annar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra. 
  • Það er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.
  • Mæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.
  • Félagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.
  • Einn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistök
  • Skortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánun
  • Árni segir það samfélagslega mikilvægt að styðja þessa feður, ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna barnanna þeirra. 
Viðmælandi í þættinum er Árni Sveinsson.

Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/