Frelsi og fullveldi

Jón Magnússon er í viðtali við Edith Alvarsdóttur. Hann segir frá hvers vegna hann valdi að starfa með Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi. Jón segir að þetta sé félagsskapur sem hann eigi fulla samleið með, félagsskapur sem vilji þoka málum áfram, vilji brydda upp á umræðum um mikilvægustu þjóðfélagsmálin á grundvelli þjóðfrelsis og fullveldis íslensku þjóðarinnar.

"Þetta skiptir verulegu máli, ekki síst núna í þessu ölduróti og umróti sem við erum stödd í, þar sem við erum að horfa upp á að það eru að bresta ýmsar stíflur," segir Jón.

Hann segir að við séum að horfa á ýmis af nágrannalöndum okkar sem hafi verið að taka á móti miklum fjölda svokallaðra hælisleitenda. Þessir hælisleitendur falli mjög illa að samfélaginu og eiginlega breyti þjóðfélagsgerðinni og þjóðfélagsmyndinni. Jón telur þetta vera það alvarlegasta sem við verðum að beita okkur gegn hér á Íslandi en að við höfum ekki langan tíma til að bregðast við.

"Þar sem að fólk í þessu félagi, Málfundafélaginu Frelsi og fullveldi, er sömu skoðunar og ég eftir það sem mér hefur sýnst þá finnst mér þetta vera góður og réttur vettvangur fyrir mig," segir Jón Magnússon.  

What is Frelsi og fullveldi?

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar.

Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar.

Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki.

Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin.

Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga.

Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.