Gímaldið

Í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður hefur verið á haustþingi og finnur ekki fyrir honum innanhús á Alþingi. Hún ræðir hótanir og aðkast í garð þingmanna, starfið á Alþingi og hvernig hún býr sig undir erfiðar umræður í þinginu. 

Meðal efnis í þættinum:
  • Er óveðurský yfir Alþingi þetta haustið?
  • Hvernig forseti býr sig undir erfiðar umræður.
  • Ofstopi, hótanir og hatursorðræða gegn þingmönnum
  • Fram að jólum hefjast allir þingfundir á sama tíma, kl.13:30. Þetta er tilraun þingforseta til að gera þingið að betri vinnustað
  • Farið verður í saumana á þingsköpunum og gerð atlaga að breytingum ef vilji og skýr markmið eru fyrir hendi.
  • Fundarstjórn forseta: Stundum verða menn að fá að pústa.
  • Eru allir jafn áfram um að þingstörfin gangi vel? 
  • Heimsókn þingforseta Úkraínu í ágúst og samstarf þingforseta.
  • Er Alþingi úrelt tæknilega séð?
  • Í lokin: þingstörf komandi viku og andlegt ástand flokkanna

Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/