Útvarp Bændablaðið


Í þessum þætti er rætt um matvöruverð á Íslandi og þann samanburð við matvöruverð í Evrópu sem Samkeppniseftirlitið setti fram í umræðuskjali svokölluðu fyrir skömmu. Við spyrjum um áhrif undanþágu afurðastöðva frá samkeppnislögum á matvöruverð, áhrif milliliðanna á matvöruverð, hvaða áhrif hugsanleg Evrópusambandsaðild myndi hafa á þessa hluti og sitthvað fleira. 




What is Útvarp Bændablaðið?

Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.