Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk flugvél rauf lofthelgi Finnlands. Evrópskar leyniþjónustur telja að ógnin frá Rússlandi sé komin á nýtt stig. Þótt Rússar hafi ekki lýst yfir stríði gegn neinu ríki Evrópusambandsins þá er Evrópa komin í einhvers konar skuggastríð. Vopnin eru ekki hefðbundin stríðstól heldur svartir listar, frysting eigna og efnahagsþvinganir.
Aðalheiður Ámundadóttir stjórnmálaskýrandi Gímaldsins rýnir í svörtu listana, en á þeim eru ekki lengur bara ólígarkar og auðmenn heldur áhrifavaldar og álitsgjafar. Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum.
Meðal efnis:
- Evrópusambandið samþykkti á dögunum að framlengja gildistíma á lista yfir 3.000 Rússa sem taldir eru ógna Evrópu.
- Drónaárásin í Leipzig, lofthelgisbrot í Finnlandi og vaxandi fjölþáttaógnir í Evrópu
- „Móðurlistinn“ frá 2014 með um 3.000 nöfnum og „áróðurslistinn“ frá 2024 með rúmlega hundrað nöfnum
- Hverjir eru á listunum og hverjir hafa losnað þaðan?
- Neitunarvaldið og dramatíkin í Brussel í september, þegar listinn var framlengdur til þriggja ára gegn því að tveir menn færu af honum
- Viðbrögð Úkraínu og krafan um að Vladimir Lisin og Vladimir Potanin fari á listann
- Evrópa hlífir þeim sem hún þarf sjálf á að halda, stáli, nikkeli og palladíum
- Fjölmiðlakonan Xenia Fedorova af RT France sett á áróðurslistann í september
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/